Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 12. júlí 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Verðandi eigandi Marseille vill fá Ronaldo og Zidane
Zinedine Zidane og Cristiano Ronaldo til Marseille?
Zinedine Zidane og Cristiano Ronaldo til Marseille?
Mynd: Getty Images
Mohamed Ayachi Ajroudi, viðskiptamaður frá Túnis, er í viðræðum við eiganda Marseille um kaup á félaginu en hann er með vægast sagt stóra drauma.

Frank McCourt er eigandi Marseille en hann er tilbúinn að selja Marseille og hófust viðræður við Ajroudi á dögunum.

Ajroudi, sem er af frönskum og túnískum ættum, fer fer fyrir fjárfestingahópi sem ætlar að kaupa Marseille. Fjárfestarnir koma frá Sádi Arabíu og sameinuðu furstaríkjunum.

Ajroudi ætlar sér stóra hluti með Marseille en hann vill fá Zinedine Zidane til að þjálfa liðið og fá þá Cristiano Ronaldo til að spila með liðinu.

„Cristiano Ronaldo er leikmaður sem ég mun aldrei gleyma. Ég er hrifinn af virðingu og aga og hann er lifandi dæmi þess. Dreymi ég um að fá hann til Marseille? Það er allt mögulegt í þessu lífi og það er draumur sem ég er hrifinn af," sagði Ajroudi.

Hann var þá spurður út í Zinedine Zidane en hann vildi ekki segja of mikið um það.

„Við sjáum hvað gerist í framtíðinni," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner