2. deild: Haukar að stinga af - Dýrmætur sigur í Vogum

Mynd: Haukar

Mynd: Haukar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Það var mikið fjör í leikjum dagsins í 2. deild karla þar sem Haukar, Fjölnir og Vogamenn unnu með sannfærandi hætti á meðan Kormákur/Hvöt gerði markalaust jafntefli við Víking Ólafsvík.
Haukar heimsóttu Magna til Grenivíkur og lentu tveimur mörkum undir snemma leiks en Jón Arnar Barðdal og Sigurður Hrannar Þorsteinsson svöruðu af krafti.
Staðan var 2-2 í leikhlé og gerðu Hafnfirðingar út um leikinn í síðari hálfleik, svo lokatölur urðu 2-5. Jón Arnar og Sigurður Hrannar settu sitthvora tvennuna og komst Einar Karl Ingvarsson einnig á blað.
Haukar eru með sex stiga forystu á toppi deildarinnar eftir þennan sigur, með 26 stig eftir 12 umferðir. Magni situr eftir á botninum með 11 stig.
Á sama tíma rúllaði Fjölnir yfir toppbaráttulið Dalvíkur/Reynis er liðin tókust á í Dalvík. Bjarni Þór Hafstein var hetja gestanna með þrennu í sannfærandi sigri þar sem lokatölur urðu 1-4.
Staðan var 0-1 í hálfleik og komust gestirnir í fjögurra marka forystu áður en Dalvíkingar minnkuðu muninn undir lokin.
Dalvík er í öðru sæti með 20 stig, tveimur stigum fyrir ofan Fjölni.
Botnlið Þróttar Vogum tók á móti KFG í fallbaráttuslag og leiddi 2-1 í hálfleik. Þegar tók að líða á seinni hálfleikinn gerðu heimamenn út um viðureignina með þremur mörkum, svo lokatölur urðu 5-1.
Almar Máni Þórisson var atkvæðamestur með tvennu og skjótast Vogamenn upp úr fallsæti með sigrinum. Þróttur er með 13 stig, einu stigi fyrir ofan KFG sem dettur niður í fallsæti.
Kormákur/Hvöt og Víkingur Ólafsvík eru um miðja deild, með 17 og 15 stig, eftir markalausa jafnteflið sín á milli.
Magni 2 - 5 Haukar
1-0 Tómas Örn Arnarson ('8, víti)
2-0 Gunnar Darri Bergvinsson ('16 )
2-1 Jón Arnar Barðdal ('34 )
2-2 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('45 )
2-3 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('52 )
2-4 Einar Karl Ingvarsson ('61 )
2-5 Jón Arnar Barðdal ('84 )
Dalvík/Reynir 1 - 4 Fjölnir
0-1 Bjarni Þór Hafstein ('34 )
0-2 Bjarni Þór Hafstein ('50, víti)
0-3 Viktor Andri Hafþórsson ('58 )
0-4 Bjarni Þór Hafstein ('80 )
1-4 Áki Sölvason ('88, víti)
Þróttur V. 5 - 1 KFG
1-0 Almar Máni Þórisson ('11 )
2-0 Eiður Jack Erlingsson ('22 )
2-1 Djordje Biberdzic ('40 )
3-1 Almar Máni Þórisson ('73 )
4-1 Franz Bergmann Heimisson ('88 )
5-1 Haukur Darri Pálsson ('93 )
Kormákur/Hvöt 0 - 0 Víkingur Ó.

TENGT EFNI
2. deild: Þjálfarinn bjargaði stigi