Fotbolti.net
12.08.18 - 20:31
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Steinn: Hann tæklaði mig hátt í legginn

Auglýsing
Guðmundur Steinn: Hann tæklaði mig hátt í legginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það er frábært að vinna leikinn, skora tvö og fiska mann út af,\"</I> sagði Guðmundur Steinn Hafsteinsson eftir 2-0 sigur Fylkis á Stjörnunni í Árbænum í kvöld.
Guðmundur Steinn skoraði bæði mörk Stjörnunnar í kvöld eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 65. mínútu. Elís Rafn BJörnsson fékk einnig rautt spjald fyrir að tækla Guðmund Stein þegar staðan var markalaus.

„Hann tæklaði mig hátt í legginn í löppina sem ég stóð í og boltinn var ekki nálægt. Ég er enginn dómari en ég treysti því að hann hafi tekið rétta ákvörðun. Ég held að þetta hafi verið rétt.\"

Fylkismenn voru ósáttir við seinna markið hjá Guðmundi Steini og vildu rangstöðu þar sem Aron Snær Friðriksson var kominn talsvert langt út úr markinu. Var Guðmundur Steinn rangstæður þar?

„Ég held ekki. Ég hef ekki sterkar skoðanir á því. Ef ég var rangstæður þá er mér alveg sama,\" sagði Guðmundur Steinn.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.