Ítalska félagið Lazio vonast til að ganga frá samningum við Simone Inzaghi á næstu vikum en þetta kemur fram í Gazzetta dello Sport í dag.
Inzaghi hefur komið Lazio aftur í röð bestu liða á Ítalíu en liðið var lengi vel í baráttunni við Juventus um titilinn en slakt gengi í síðustu leikjunum varð til þess liðið missti Juventus of langt frá sér.
Lazio vonast til að framlengja samning Inzaghi á næstu vikum en félagið ætlar að bjóða honum 3 milljónir evra í árslaun.
Inzaghi hefur til þessa beðið með að framlengja samninginn í þeirri von um að fá dágóðan pening til að kaupa leikmenn í glugganum en stjórnarmenn Lazio eru tilbúnir að ganga að samningaborðinu.
Ítalski þjálfarinn gerði Lazio að bikarmeisturum árið 2019 og þá er liðið komið aftur í Meistaradeild Evrópu eftir langt hlé og verður gaman að fylgjast með þróun liðsins á næsta tímabili.
Athugasemdir