20.09.26 - 10:53
Brynjar Ingi Erluson
Yamal um Rashford - „Hann hafði ekki hugmynd um hvað þessi leikur þýddi“

Marcus Rashford og Lamine Yamal

Mynd: EPA

Marcus Rashford og Lamine Yamal

Mynd: EPA
Lamine Yamal, stjarna Barcelona, segir Marcus Rashford ekki hafa gert sér grein fyrir því hversu mikla þýðingu El Clasico hefur fyrir félagið þegar Englendingurinn kom fyrst til Barcelona á síðasta ári.
Rashford eyddi síðasta tímabili á láni hjá Barcelona frá Manchester United.
Englendingurinn byrjaði sinn fyrsta El Clasico-leik í 2-1 tapi gegn Real Madrid á Bernabeu í október á síðasta ári og lagði upp eina mark Barcelona.
Yamal telur Rashford ekki hafa áttað sig almennilega á stærð leiksins í fyrstu.
„Í fyrsta El Clasico-leik Rashford, þegar við töpuðum 2-1 á Bernabeu, horfði ég á hann spila og hugsaði að hann hefði enga hugmynd um hversu mikla þýðingu þessi leikur hefur,“ sagði Yamal.
Í síðari leiknum skoraði Rashford glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í 2-0 heimasigri og þá sá Yamal allt aðra hlið á enska leikmanninum.
„Í seinni leiknum áttaði hann sig á því um hvað þetta snerist. Hann skoraði úr aukaspyrnu og spilaði af allt annarri ákefð.“
„Þegar þú elst upp í La Masia (akademíu Barcelona) veistu nákvæmlega hvað þessi leikur þýðir og að hann er eins og bardagi,“ sagði Yamal.