12.08.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arsenal keyrir aftur upp áhugann á Konsa

Ezri Konsa og Declan Rice, leikmaður Arsenal.

Mynd: EPA

Cristian Romero.

Arsenal er aftur komið með augun á Ezri Konsa miðvörð Aston Villa. Það er BBC sem greinir frá.
Konsa, sem er 28 ára, er enn í fríi eftir HM og er ekki með leikmannahópi Aston Villa sem undirbýr sig fyrir leikinn gegn PSG í Ofurbikar Evrópu í kvöld.

Arsenal horfði til Konsa fyrr í sumar, Skytturnar voru tilbúnar að greiða 30 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn en Villa vildi fá tvöfalt hærri upphæð.
Konsa spilaði 48 leiki á síðasta tímabili með Villa og varð Evrópudeildarmeistari.
Arsenal kláraði kaupinn á Bruno Guimaraes frá Newcastle og horfa ensku meistararnir nú á Konsa sem skotmark. Konsa getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður sem heillar menn í Norður-Lundúnum.
Arsenal er meðvitað um að félagið verði að hækka sitt fyrsta tilboð til að landa Konsa, en óvíst er hvort Aston Villa muni sætta sig við tilboð lægra en 60 milljónir punda.
Þá hefur verið sagt frá því að Arsenal hafi kannað möguleikann á því að fá Cristian Romero sem er fyrirliði erkifjendanna í Tottenham. Spurs vill ekki selja Cuti til Arsenal út af rígnum milli félaganna.
Það hefur ekki stoppað Arsenal í að kanna hvað hann myndi kosta. Ef þau skipti ganga í gegn yrðu þau sennilega ein óvæntustu skipti sumarsins í úrvalsdeildinni.