Fotbolti.net
12.08.26 - 22:24
Andri Stefánsson

Gylfi Tryggva: „Mig langar að spila þennan leik aftur“

Auglýsing
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik og Grindavík/Njarðvík áttust við í 16. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Gylfa Tryggvason, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir 1-0 tap.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
„Ég er mjög óánægður með fyrri hálfleikinn en sáttur með seinni hálfleikinn,“ sagði Gylfi eftir leik.

Gylfi var spurður hvað hefði helst vantað upp á hjá hans liði til að ná í stigin þrjú.

„Það vantaði baráttu í fyrri hálfleik. Leikmenn fylgdu ekki leikplaninu sem við lögðum upp með. Það breyttist í seinni hálfleik þar sem þær fóru að berjast fyrir þessu og leggja sig meira fram. Þá nálguðumst við þetta mun betur.“

Gylfi var þá spurður út í leikplanið.

„Leikplanið var að spila okkar leik, halda boltanum og skapa okkur færi. Við vorum með mjög skýra hugmynd um hvernig við ætluðum að spila og hvernig við ætluðum að stoppa þær. Það fór hins vegar allt of langt frá því í fyrri hálfleik. Ég skil eiginlega ekki af hverju. Ég er mjög óánægður með fyrri hálfleikinn en sáttur með þann seinni. Það er pirrandi því mig langar að spila þennan leik aftur. Mér finnst við geta spilað betri leik gegn þessu liði. Vonandi endum við í topp sex og fáum tækifæri til þess.“

Þá var Gylfi spurður út í fyrsta leik Taylor með liðinu.

„Hún kom vel inn. Hún er mjög viðkunnanleg og átti fínan leik.“

Að lokum var Gylfi spurður út í leikinn gegn Fram í næstu umferð.

„Hann leggst vel í mig. Það er full langt í hann, væri til í að spila á morgun, en við þurfum að undirbúa okkur vel. Við verðum að gera betur en í dag til þess að geta gengið sátt frá borði eftir þann leik.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Taylor Fox var að spila sinn fyrsta leik fyrir Grindavík/Njarðvík í kvöld.

Taylor Fox var að spila sinn fyrsta leik fyrir Grindavík/Njarðvík í kvöld.

Canon

Mynd: USL

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.