Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 12. nóvember 2020 18:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Íslands: Rúnar Már inn fyrir Arnór Ingva
Icelandair
Rúnar kemur inn í byrjunarlið Íslands.
Rúnar kemur inn í byrjunarlið Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:45 verður flautað til leiks í ungversku höfuðborginni, Búdapest, þar sem heimamenn taka á móti Íslandi í úrslitaleik um sæti á EM næsta sumar.

Leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum á Puskas Arena. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en einnig verður hægt að fylgjast með leiknum hér á Fótbolti.net í beinni textalýsingu.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið Íslands er klárt fyrir leikinn. Gamla bandið kemur saman og er ein breyting á byrjunarliðinu frá sigurleiknum gegn Rúmeníu í síðasta mánuði. Arnór Ingvi Traustason er ekki með í dag og kemur Rúnar Már Sigurjónsson í liðið í hans stað.

Rúnar Már fer inn á miðjuna og Birkir Bjarnason fer á kantinn. Guðlaugur Victor Pálsson er áfram í hægri bakverði.

Byrjunarlið Íslands:
1. Hannes Þór Halldórsson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
6. Ragnar Sigurðsson
7. Jóhann Berg Guðmundsson
8. Birkir Bjarnason
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Alfreð Finnbogason
14. Kári Árnason
16. Rúnar Már Sigurjónsson
17. Aron Einar Gunnarsson
18. Hörður Björgvin Magnússon


Hannes rýnir í Ungverjaleikinn: Held að þetta ráðist á einu marki
Athugasemdir
banner
banner