Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. nóvember 2022 16:20
Aksentije Milisic
Hudson-Odoi hafnaði því að spila á HM með Gana
Mynd: EPA

Callum Hudson-Odoi, leikmaður Chelsea sem er á láni hjá Bayer Leverkusen, hafnaði því að spila með Gana á HM sem hefst í Katar eftir rúma viku.


Hudson-Odoi hefur verið lykilleikmaður hjá Bayer sem er í tíunda sæti þýsku úrvalsdeildinnar og er komið í Evrópudeildina eftir að hafa lent í þriðja sæti í sínum riðli í Meistaradeild Evrópu.

Leikmaðurinn er 22 ára og getur spilað fyrir landslið Gana en foreldrar hans eru frá landinu. Hann mátti því skipta yfir í Gana þrátt fyrir að vera búinn að spila þrjá landsleiki fyrir England.

Hann spilaði þessa þrjá leiki áður en hann varð 21 árs og gat því farið til Katar með landsliði Gaana.

Hudson-Odoi hefur greinilega ekki gefist upp á því að spila með enska landsliðinu í framtíðinni en hann afþakkaði boðið frá Gana.


Athugasemdir
banner
banner
banner