Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
banner
   mið 13. maí 2026 21:05
Alexander Tonini
„Af því enginn þekkir nafnið þá veljið þið hann ekki mann leiksins”
Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar Reykjavíkur
Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar Reykjavíkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örn Bragi hefur spilað vel í sumar
Örn Bragi hefur spilað vel í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur Reykjavík fékk gott tækifæri til að máta sig inn í aðstæðurnar við að spila í Bestu deildinni á næsta ári. Eitthvað sem flestir ef ekki allir sparksérfræðingar búast við.

Breiðablik kom í heimsókn og fyrsta hálftímann leit Þróttur út fyrir að vera betra lið og var líklegra til að skora. Breiðablik tók hins vegar völdin eftir 30 mínútur og fóru með 2-1 sigur af hólmi.

En hvernig fannst Venna leikurinn?

„Þetta var áhugaverður leikur, þróaðist í óvenjulega átt í seinni hálfleik þar sem við erum allt í einu manni fleiri. Kemur pressa á okkur að sækja og herja á Blikanna. Við reyndum að gera það til að jafna leikinn en það dugði ekki til."

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Breiðablik

Þróttur R. mætti tilbúið til leiks og ætlaði sér sigur og voru betri aðilinn framan af, vorum meira með boltann og áttu fleiri færi.

„Já ég er sammála því að byrjunin var mjög góð, mjög sterk. Fyrri hálfleikurinn var í heild sinni mjög jafn. Það er aldrei gott að fá á sig mark en óþægilegt að fá á sig mark rétt fyrir hlé."

Fannst Venna þessi frammistaða sýna það að Þróttur R. er nógu gott til að spila í Bestu deildinni?

„Auðvitað nýtir maður þessa leiki í akkúrat þessar pælingar, máta sig aðeins og hvernig við lítum út. Auðvitað spiluðum við við þessi lið á vetrartímanum í æfingarleikjum en það er kannski ekki alveg það sama. Það er mjög hollt að taka svona leiki og sjá hvar við stöndum. Mér finnst við alveg eiga erindi í að keppa í sömu deild og þeir."

Hvað getur Venni sagt okkur um Örn Braga Hinriksson 18 ára strákur sem hefur slegið í gegn í byrjun tímabils?

„Hann hefur sýnt það í fyrstu þremur leikjum að fyrir utan að skora í öllum þessum leikjum þá er hann að spila vel. Ég er ekki bara að eltast við mörk heldur líka hvernig menn spila. Örn Bragi er gífurlega hæfileikaríkur, og af því að enginn þekkir nafnið þá veljið þið hann ekki mann leiksins."

Viðtalið í heild má nálgast í spilaranum hér að ofan
Slapp
banner
banner