'Með því að viðhalda þeim standard sem við höfum sett á okkur sjálfa sem lið, þá hef ég fulla trú á jákvæðum úrslitum'
'Ég er ánægður með mitt hlutverk og hungraður fyrir meira og finn fyrir miklu trausti bæði frá þjálfurunum og liðsfélögum'
Orri Hrafn Kjartansson kom inn í lið KR gegn Stjörnunni á föstudag og hjálpaði liðinu að koma til baka og sigra Stjörnuna í Bestu deildinni.
Liðin mætast aftur á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld, nú í Mjólkurbikarnum og verðu flautað til leiks klukkan 20:00.
Miðjumaðurinn, sem KR keypti frá Val í sumarglugganum í fyrra, svaraði spurningum Fótbolta.net fyrir leikinn.
Liðin mætast aftur á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld, nú í Mjólkurbikarnum og verðu flautað til leiks klukkan 20:00.
Miðjumaðurinn, sem KR keypti frá Val í sumarglugganum í fyrra, svaraði spurningum Fótbolta.net fyrir leikinn.
Þurfa að halda haus
„Mér líst mjög vel á það að mæta Stjörnunni aftur. Stjarnan er með flott lið og leikirnir gegn þeim eru alltaf skemmtilegir. Bikarinn er auðvitað öðruvísi keppni og við ætlum okkur áfram í næstu umferð."
„Ég held það megi búast við hörkuleik eins og síðasta föstudag. Við mætum í þennan leik eins og hvern annan leik, með mikla orku og mikinn kraft og þá má búast við skemmtilegum leik," segir Orri Hrafn.
Hvað þurfið þið að gera til að ná í jákvæð úrslit?
„Við þurfum að halda áfram á sömu braut og við höfum verið á. Með því að viðhalda þeim standard sem við höfum sett á okkur sjálfa sem lið, þá hef ég fulla trú á jákvæðum úrslitum."
Takið þið mikið út úr síðasta leik, eitthvað sérstakt sem þarf að breyta?
„Nei, ekkert sérstakt sem þarf að breyta. Það sem við tökum með okkur úr fyrri leiknum er aðallega það að það er ekkert gefið í fótboltanum, leikurinn getur þróast í átt sem maður ætlaði sér ekki, eins og gerðist hjá okkur í fyrri hálfleik. Þá er það bara að halda haus og gefa í eins og við gerðum gríðarlega vel."
Ertu sáttur með þína innkomu í leikinn?
„Já, ég var bara sáttur við að geta hjálpað liðinu og gert mitt að mörkum til að hækka orkustigið og snúa leiknum okkur í hag. "
Efldi okkur mikið sem lið að ganga saman í gegnum erfitt tímabil í fyrra
Hvernig líður þér með byrjunina hjá ykkur á tímabilinu og þitt hlutverk?
„Það er erfitt að segja annað en að maður sé mjög sáttur með þessa byrjun. Spilamennskan hefur verið góð og hugarfarið líka. Við erum með hörku gott lið af leikmönnum með mikil gæði og liðsheildin er sterk."
„Ég er ánægður með mitt hlutverk og hungraður fyrir meira og finn fyrir miklu trausti bæði frá þjálfurunum og liðsfélögum."
Finnur þú mikinn mun á leik liðsins núna og miðað við spilamennskuna eftir að þú komst í fyrra?
„Ég fann það frá fyrstu æfingu þegar ég mætti í fyrra að við værum með gott lið og potential í að gera góða hluti, mjög hátt tempó á æfingum og samheldinn klefi. Ég finn hvað mest fyrir auknu sjálfstrausti hjá liðinu sem heild og ég held að það efldi okkur mikið sem lið að ganga saman í gegnum erfitt tímabil í fyrra. En að sjálfsögðu höfum við líka bætt okkur mikið sem lið og fínpússað vissa hluti og lagt áherslu á nokkur atriði sem hafa ýtt okkur enn framar sem lið."
Eigi eftir að stíga upp og eiga fínt sumar
Hvernig sér byrjun Stjörnunnar á sínu tímabili við þér?
„Ég hugsa að Stjarnan sé klárlega lið sem vill gera betur, þeir eru með vel þjálfað og gott lið sem er erfitt að mæta þegar þeir eru á sínum degi. Ég held að þeir muni stíga upp og eiga fínt sumar."
Hef aldrei séð svona stuðning áður
Annar kvöld leikur á Samsungvellinum, stuðningsmennirnir voru öflugir á föstudaginn, verður þetta ekki bullandi stemning?
„Þetta verður algjör stemning, hörku leikur milli tveggja góðra liða og við munum halda áfram þeirri orku og stemningu sem hefur verið frá upphafi tímabilsins."
„Stuðningurinn hefur verið gjörsamlega geggjaður. Maður hefur ekki séð svona stuðning áður og ég hef fulla trú á að það haldi áfram!" segir Orri Hrafn.




