Fotbolti.net
13.06.20 - 20:17
Mist Rúnarsdóttir

Kjartan: Þær eru að borða eitthvað þarna í sveitinni

Auglýsing
Kjartan og co. byrja mótið á sterkum sigri

Kjartan og co. byrja mótið á sterkum sigri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
„Ég er fyrst og síðast ótrúlega ánægður með þessi þrjú stig. Við vorum rosalega taugaóstyrkar í fyrri hálfleik og spennustigið aðeins of hátt. Ég tek það á mig,“ sagði Kjartan Stefánsson eftir sterkan heimasigur gegn Selfossi í fyrstu umferð Pepsi Max deildarinnar.
Fylkisliðið átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik gegn líkamlega sterku liði Selfoss en fékk meira sjálfstraust í seinni hálfleik og tókst betur til við að nýta sína styrkleika.

„Selfossliðið er þokkalega sterkt lið. Þær eru að borða eitthvað þarna í sveitinni sem við þurfum að komast yfir. Það var kannski helsti munurinn. Þær voru ákveðnari í fyrsta bolta og áttu flesta lausa bolta. Okkar svar hefur yfirleitt verið að vera með boltann og spila honum en það var ekki hægt að sjá það í dag. Við tókum okkur þó saman í andlitinu í hálfleik og mér fannst við koma til baka og sýna karakter. Við vörðumst allavegana vel.“

Fylkir fékk dæmda á sig vítaspyrnu á lokamínútunum og Árbæingum var ekki skemmt.

„Mér fannst þetta ekki vera víti en ég var auðvitað í slæmri stöðu til að dæma um það,“ sagði Kjartan og minntist jafnframt á að bakhrindingar og ýtingar hefðu fengið að viðgangast í leiknum og það gæti setið eitthvað í leikmönnum beggja liða á næstu dögum. Hann var þó fyrst og síðast alsæll með stigin þrjú og hlakkar til að mæta KR í næsta leik en liðunum er spáð á svipuðum slóðum í deildinni.

„Ég hlakka til að mæta KR. Það er alltaf skemmtilegt. Ég tala nú ekki um að hitta Rögnu Lóu, það verður skemmtilegt.“

Hægt er að horfa á allt viðtalið við Kjartan í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.