Fotbolti.net
13.06.20 - 17:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristján um varamarkmannsleysið: Þarf að lækka laun leikmanna til að fá nýja inn

Auglýsing
Kristján um varamarkmannsleysið: Þarf að lækka laun leikmanna til að fá nýja inn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Þór/KA var heilt yfir mikið betra liðið," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 4-1 tap gegn Þór/KA á útivelli í dag. Leikurinn var liður í 1. umferð Pepsi Max-deildar kvenna.
„Það þýðir ekkert að tala um leikmenn sem vanta. Það sem vantaði í dag var meiri ákefð, við náðum ekki að klukka þær, náðum ekki að pressa boltann því Þór/KA spilaði mjög góðan leik og við vorum að elta."

„Leikmenn voru mjög stressaðir á boltanum og bara neglt fram. Ólíkt okkur en tek það ekki af andstæðingnum að hann spilaði mjög vel."

„Framhaldið ræðst á því hvernig við vinnum úr spilunum eftir þennan leik. Við spilum á heimavelli í næsta leik og við lyftum okkur ekki upp þar þurfum við að skoða þetta aðeins betur."


Stjarnan var ekki með varamarkvörð á skýslu í dag og Anna María Baldursdóttir var ónotaður varamaður. Hvernig er staðan á þessum málum hjá Stjörnunni?

„Anna María er bara meidd og við erum ekki með annan markmann þannig séð."

Er í kortunum að fá inn annan markmann?

„Fyrst þurfum við að lækka laun leikmanna til að eiga fyrir nýjum leikmanni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.