Fotbolti.net
13.06.26 - 22:54
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu mörkin: Jafnt í hálfleik í fyrsta stórleiknum

Sjáðu mörkin: Jafnt í hálfleik í fyrsta stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Staðan er jöfn, 1-1, í leikhlé í fyrsta stórleik heimsmeistaramótsins 2026. Brasilía spilar þar við Marokkó í afar spennandi slag.
Marokkó var sterkari þjóðin í upphafi leiks og náði Ismael Saibari, sem er sterklega orðaður við FC Bayern í sumar, forystunni eftir hárnákvæma stungusendingu frá Brahim Díaz, leikmanni Real Madrid.

Saibari vann kapphlaup við Gabriel Magalhaes, Marquinhos og Alisson Becker til að skora. Hann var fljótari heldur en miðverðirnir sem eru ekki þekktir fyrir mikinn hraða og þá tók Alisson ákvörðun að koma langt af marklínunni sem Saibari nýtti sér. Hann kláraði færið mjög vel með að lyfta boltanum yfir Alisson, sem var kominn útfyrir eigin vítateig, og í autt netið.

Sjáðu opnunarmark Ismael Saibari

Marokkó sýndi flotta takta og fékk hálffæri til að tvöfalda forystuna en skoraði ekki. Þess í stað refsaði Vinícius Júnior með frábæru jöfnunarmarki eftir laglegt framtak úti á vinstri vængnum. Vinícius gerði stærsta hlutann sjálfur en fékk líka hjálp frá Bruno Guimaraes.

Sjáðu jöfnunarmark Vinícius Júnior

Meira gerðist ekki svo staðan var 1-1 í leikhlé. Marokkó var betra liðið í fyrri hálfleiknum og verður spennandi að fylgjast með hvernig seinni hálfleikurinn spilast.

Byrjunarlið Brasilíu og Marokkó: Stjörnur mætast í fyrsta stórleiknum
TENGT EFNI

Byrjunarlið Brasilíu og Marokkó: Stjörnur mætast í fyrsta stórleiknum

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Sjáðu mörkin: Jafnt í hálfleik í fyrsta stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Sjáðu mörkin: Jafnt í hálfleik í fyrsta stórleiknum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.