Fotbolti.net
12.11.26 - 15:16
Kári Snorrason

ÍA hefur samþykkt tilboð Vals í Ómar Björn

Skoraði tvö og lagði upp fjögur í Bestu í sumar.

Skoraði tvö og lagði upp fjögur í Bestu í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net samþykkt tilboð Vals í Ómar Björn Stefánsson.

Ómar, sem er 22 ára sóknarsinnaður leikmaður, mun því að öllum líkindum fara á Hlíðarenda.
Hann spilaði 23 leiki með ÍA á liðnu tímabili og kom að sex mörkum. Ómar gekk í raðir Skagamanna frá Fylki fyrir rúmum tveimur árum.

Halldór Árnason er tekinn við sem þjálfari Vals og hefur hann sótt þá Sigurð Arnar Magnússon frá ÍBV og Tuma Fannar Gunnarsson frá Fylki eftir að tímabilinu lauk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.