13.11.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Wirtz: Fólk getur sagt það sem það vill um mig

Florian Wirtz

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Florian Wirtz

Mynd: EPA
Florian Wirtz, leikmaður Liverpool, segist hvorki lesa né hlusta á það sem sagt er um hann á samfélagsmiðlum.

TENGT EFNI
Havertz um Wirtz: Lifum í heimi þar sem margir horfa ekki einu sinni á leikina
Wirtz hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir frammistöðu sína síðan hann gekk til liðs við Liverpool frá Bayer Leverkusen á síðasta ári.
Liverpool gæti þurft að greiða allt að 116 milljónir punda fyrir Þjóðverjann ef öll ákvæði samningsins virkjast, en hann hefur verið gagnrýndur úr öllum áttum fyrir að spila undir getu. Wirtz hefur þó farið að finna sig betur að undanförnu og sýnt hvað í honum býr í síðustu leikjum.
Mikil áhersla er lögð á mörk og stoðsendingar í umræðunni um fótbolta í dag, oft án þess að fólk horfi raunverulega á leikina. Þetta benti Kai Havertz, samherji Wirtz í þýska landsliðinu, meðal annars á þegar hann kom honum til varnar í viðtali á dögunum.
Wirtz hefur sjálfur fundið leið til að láta gagnrýnina ekki hafa áhrif á sig og segist einfaldlega hættur að fylgjast með því sem fólk segir um hann.
„Ég hef fundið mjög góða leið til að einangra mig frá þessu með því að skoða þetta einfaldlega ekki. Ég leita ekki lengur að neinu um sjálfan mig og það er auðveldasta og besta leiðin til að halda einbeitingunni og hreinsa hugann, því þetta myndi bara draga mann niður.“
„Með því að hvorki horfa né hlusta á þetta hefur það engin áhrif á mig. Fólk getur sagt það sem það vill um mig,“ sagði Wirtz.
Þjóðverjinn hefur verið í fantaformi að undanförnu og er nú kominn með tvö mörk og fimm stoðsendingar í fimmtán leikjum í öllum keppnum.