13.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Xavi: Hann er einn besti miðjumaður heims

Xavi

Mynd: EPA

Xavi

Mynd: EPA
Xavi, þjálfari hollenska landsliðsins, hefur ákveðið að afhenda Frenkie de Jong fyrirliðabandið fyrir komandi landsleikjaverkefni.
Virgil van Dijk, fyrirliði Hollands, er frá vegna meiðsla og fær De Jong því það hlutverk að leiða liðið í fjarveru hans.
De Jong lék undir stjórn Xavi hjá Barcelona og þekkja þeir því vel hvor til annars. Xavi, sem er sjálfur talinn einn besti miðjumaður allra tíma, sparaði ekki stóru orðin þegar hann útskýrði ákvörðun sína og veitti De Jong mikið hrós.
„Í fyrsta lagi er það persónuleikinn hans. De Jong vill fá boltann, bæta sig á hverjum degi og vera hluti af liðinu. Ég þekki hann mjög vel og veit að hann tekur alltaf ábyrgð.“
„Svo er það líka út af gæðunum sem hann býr yfir. Mér finnst hann vera einn besti miðjumaður heims og þessar ástæður eru mjög mikilvægar fyrir mér,“ sagði Xavi um De Jong.
Holland mætir Grikklandi og Þýskalandi í Þjóðadeildinni, en liðið er á toppi riðilsins með átta stig.