13.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal og Real Madrid eltast við varnarmann Dortmund

Joane Gadou er einn efnilegasti miðvörður heims

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal og Real Madrid fylgjast grannt með franska varnarmanninum Joane Gadou, sem hefur vakið mikla athygli með Borussia Dortmund í Þýskalandi.
Gadou er aðeins 19 ára gamall miðvörður sem hefur heillað með frammistöðu sinni síðan hann kom til Dortmund frá Salzburg.
Hann er hávaxinn og gríðarlega sterkur, en býr einnig yfir góðri sendingagetu og er óhræddur við að keyra fram völlinn með boltann.
Þýski miðillinn Fussball-News telur ólíklegt að Gadou verði lengi hjá Dortmund haldi hann áfram á sömu braut. Arsenal og Real Madrid eru sögð fylgjast sérstaklega vel með honum, auk Evrópumeistara Paris Saint-Germain.
Gadou er samningsbundinn Dortmund til ársins 2031, en félagið gæti verið tilbúið að selja hann fyrir 40 til 50 milljónir evra. Dortmund mun þó ekki hlusta á tilboð í Frakkann í janúarglugganum.
Gadou hefur leikið með öllum yngri landsliðum Frakklands en á enn eftir að þreyta frumraun sína með A-landsliðinu, enda er samkeppnin um miðvarðarstöðurnar þar gríðarlega hörð.