Fotbolti.net
13.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Framherji Forest aftur á leið til Þýskalands?

Framherji Forest aftur á leið til Þýskalands?
Canon

Mynd: Nottingham Forest

Þýska félagið Eintracht Frankfurt hefur sett Arnaud Kalimuendo, framherja Nottingham Forest, efstan á óskalista sinn fyrir félagaskiptagluggann í janúar.
Kalimuendo, sem er 24 ára, vill ólmur komast frá Forest í janúar eftir að hafa fallið niður goggunarröðina síðan Oliver Glasner tók við stjórn liðsins. Hann hefur aðeins leikið 110 mínútur í fimm leikjum undir stjórn Glasner og vill nú leita á önnur mið.

Forest mun ekki standa í vegi fyrir Kalimuendo vilji hann yfirgefa félagið í janúar og samkvæmt TeamTalk er Frankfurt þegar farið að undirbúa tilboð í framherjann.

Talið er að Forest vilji fá að minnsta kosti 25 milljónir punda fyrir Kalimuendo, sem kom til félagsins frá Rennes á síðasta ári, en ekki er útilokað að félagið samþykki að lána hann út út tímabilið.

Kalimuendo þekkir vel til hjá Frankfurt eftir að hafa leikið með félaginu á seinni hluta síðasta tímabils, en þar skoraði hann sex mörk í nítján deildarleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.