13.11.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Segja Anderson hafa viljað ganga í raðir Man Utd

Elliot Anderson

Mynd: EPA

Man Utd hefur viðurkennt innanbúðar að hafa greitt of mikið fyrir Santos

Mynd: Man Utd

Elliot Anderson

Mynd: EPA
Enski miðillinn Times greinir frá því að Elliot Anderson hafi viljað ganga í raðir Manchester United í sumar, en Nottingham Forest hafnaði tilboði félagsins í miðjumanninn.
Anderson gekk að lokum til liðs við Man City fyrir 116 milljónir punda og varð þar með dýrasti Englendingur sögunnar. Það met stóð þó ekki lengi því Morgan Rogers bætti það skömmu síðar þegar hann fór frá Aston Villa til Chelsea.
Áður en Anderson gekk í raðir City hafði United reynt að krækja í hann og lagt fram 85 milljóna punda tilboð sem Forest hafnaði. Samkvæmt Times var Anderson sjálfur mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við United, en ekkert varð úr félagaskiptunum.
Anderson sér þó líklega ekki mikið eftir því í dag, miðað við hvernig United hefur farið af stað á tímabilinu og hversu vel honum sjálfum hefur gengið hjá City.
United hafði fleiri miðjumenn á óskalistanum í sumar, þar á meðal Mateus Fernandes hjá West Ham. Félagið tapaði hins vegar baráttunni um hann fyrir Tottenham, sem greiddi 86 milljónir punda fyrir Portúgalann.
Sömu sögu var að segja af ítalska miðjumanninum Sandro Tonali, sem United hafði mikinn áhuga á, en Tottenham hafði einnig betur í þeirri baráttu og gekk frá kaupum á honum.
United endaði þess í stað á að kaupa Andrey Santos, Youri Tielemans og Carlos Baleba til að styrkja miðsvæðið, en samkvæmt Times hafa stjórnarmenn félagsins viðurkennt innanbúðar að hafa greitt allt of mikið fyrir Santos.
United greiddi Chelsea um 50 milljónir punda fyrir Santos, sem hefur átt erfitt uppdráttar og lítið látið að sér kveða á fyrstu mánuðum tímabilsins.