14.04.24 - 18:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Fylkis og Vals: Ein breyting hjá Val - Orri má ekki spila

Gísli Laxdal kemur inn í lið Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gummi Tyrfings kemur inn í byrjunarlið Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gísli Laxdal kemur inn í lið Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 hefst fimmti leikur 2. umferðar í Bestu deildinni þegar Fylkir og Valur mætast í Árbænum.
Þjálfararnir eru búnir að opinbera byrjunarliðin og má sjá þau hér neðst.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn KR í fyrstu umferð. Rúnar verður þó ekki á hliðarlínunni í kvöld þar sem hann tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald í lok leiksins gegn KR. Benedikt Daríus Garðarsson er ekki í hópnum og Orri Hrafn Kjartansson má ekki spila leikinn þar sem hann er í láni frá Val. Inn koma þeir Þórður Gunnar og Guðmundur Tyrfingsson. Þeir Guðmar Gauti Sævarsson og Theodór Ingi Óskarsson koma inn í hópinn.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 0 Valur
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gerir eina breytingu frá sigrinum gegn ÍA. Gísli Laxdal kemur inn í liðið fyrir Sigurð Egil Lárusson sem er ekki í hópnum í dag. Bjarni Guðjón Brynjólfsson kemur inn í hópinn.
Byrjunarlið Fylkir
- 1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
- 2. Ásgeir Eyþórsson (f)
- 3. Arnór Breki Ásþórsson (f)
- 5. Orri Sveinn Stefánsson (f)
- 9. Matthias Præst Nielsen
- 11. Þórður Gunnar Hafþórsson
- 17. Birkir Eyþórsson
- 18. Nikulás Val Gunnarsson
- 22. Ómar Björn Stefánsson
- 70. Guðmundur Tyrfingsson
- 80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Byrjunarlið Valur
- 1. Frederik August Albrecht Schram (m)
- 2. Birkir Már Sævarsson (f)
- 6. Bjarni Mark Antonsson
- 7. Aron Jóhannsson
- 9. Patrick Pedersen
- 10. Jónatan Ingi Jónsson (f)
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
- 16. Gísli Laxdal Unnarsson
- 20. Orri Sigurður Ómarsson
- 23. Gylfi Þór Sigurðsson (f)

Gummi Tyrfings kemur inn í byrjunarlið Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð