Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
banner
   fim 14. maí 2026 00:52
Sigurjón Árni Torfason
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Damir Muminovic
Damir Muminovic
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík mætti ÍA á Elkem vellinum á Akranesi núna í kvöld.

Leiknum lauk með 2-2 jafntefli eftir framlengdan leik sem endaði á því að ÍA stóð uppi sem sigurvegari eftir vítaspyrnukeppni.

Damir Muminovic, fyrirliði Grindavíkur var vægast sagt svekktur eftir leik.

Lestu um leikinn: ÍA 7 -  6 Grindavík

„Þetta er bara drullusvekkjandi. Ég veit ekkert hvað ég á að segja, við vorum 10 sekúndum frá þessu."

Grindvíkingar komust yfir í framlenginguni og voru mjög nálægt því að halda það út. Þegar Viktor Jónsson skoraði flautumark og jafnaði metin.

„Það voru 10 sekúndur eftir eins og ég segji. Þeir ná að pota inn einhverju marki. Þetta var virkilega svekkjandi miðað við frammistöðuna sem við gáfum þeim í dag."

Varnarleikur Grindavík var heilt yfir mjög góður í dag. Síðan þegar Viktor Jónsson skorar undir restina sofnuðu Grindvíkingar á verðinum.

„Þetta var einhver misskilningur hjá okkur þarna til baka. En þetta er bara fótbolti og þetta gerist en við þurfum bara halda áfram."

ÍA voru með öll tök á vellinum í fyrri hálfleik en Grindvíkingar unnu sig vel inní leikinn í síðari hálfleik.

„Við vorum langt frá mönunum okkar í seinni hálfleik. Þeir fundu svæðin á miðjunni og náðu að sækja á okkur. En síðan fórum við bara soldið í „fokkit mode" í seinni hálfleik og maður á mann og mér fannst við betri í seinni hálfleik. Og kannski við hefðum getað laumað þriðja markinu inn."
Slapp
banner