Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 13:30
Brynjar Ingi Erluson
Stjarna Bournemouth ekki til sölu
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Eli Junior Kroupi verður ekki seldur frá Bournemouth í sumarglugganum.

Kroupi, sem er 19 ára gamall, hefur skorað tólf deildarmörk á tímabilinu og er kominn á óskalista margra úrvalsdeildarfélaga.

Tiago Pinto, yfirmaður fótboltamála hjá Bournemouth, segir að það komi ekki til greina að selja Frakkann í sumar.

„Eli Junior Kroupi er ekki á förum frá félaginu. Hann er samningsbundinn félaginu í fjögur ár og það er engin kaupklásúla í samningnum þannig hann fer ekki fet.“

„Við munum ekki selja Kroupi, jafnvel þó við fengjum tilboð upp á 100 milljónir evra,“
sagði Pinto við 365Score.

Bournemouth keypti Kroupi frá Lorient á síðasta ári fyrir 17 milljónir punda.
Slapp
banner
banner