Rakel Hönnu: Hundleiðinlegt að ferðast með gítarinn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

<i>„Stemningin er mjög góð. Það eru allir mjög einbeittir og klárir í þetta,\"</i> sagði Rakel Hönnudóttir leikmaður Breiðabliks og íslenska kvennalandsliðsins.
Rakel fer til Hollands seinni partinn í dag með landsliðinu á lokakeppni Evrópumótsins. Hún hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli en hún fór af velli meidd í lokaleik Breiðabliks fyrir EM.

„Staðan á mér er mjög góð. Bataferlið hefur gengið mjög vel. Ég er mjög bjartsýn. Ég var tiltölulega fljót að ná að hlaupa og hjóla aftur eftir að ég meiddi mig. Ég hef því náð að halda mér í góðu standi. Sendingar og annað kemur síðan fljótt inn í æfingaferlið. Ég hef verið að senda undanfarna daga og þetta gengur mjög vel,\" sagði Rakel sem hefur farið varlega á æfingum með liðinu undanfarið en er hægt og bítandi að taka meiri þátt á æfingunum.
„Ég tek ekki alveg þátt í öllu. Við reynum að geyma það eins lengi og við getum að senda langar sendingar bara svo það komi ekki bakslag. Ég hef verið töluvert mikið með styrktarþjálfaranum og síðan hef ég tekið þátt í taktík og slíkt.\"
Rakel er ein af fáum í hópnum sem er að fara á sitt þriðja lokamót EM.
„Maður verður að horfast í augun á það að maður er orðin svolítið gamall. Það er frábært að taka þátt í þremur stórmótum,\" sagði Rakel sem segir reynsluna dýrmæta í svona móti.
„Maður lærir alltaf af fyrri reynslu og KSÍ er alltaf að gera betur og betur. Ég hef verið mjög ánægð með undirbúninginn og það eru allir að gera eins vel og þeir geta. Bæði þjálfarar, liðið og starfsmenn KSÍ.
„Við erum að fá fleiri starfsmenn inn í teymið sem hjálpar okkur. Til dæmis eru fleiri að horfa á andstæðingana og undirbúa okkur sem á endanum hjálpar okkur, \" sagði Rakel sem segir það jákvætt hversu mikinn stuðning stelpurnar fá á mótinu en hátt í 3000 Íslendingar verða á leikjum liðsins í riðlakeppninni.
„Á síðasta stórmóti voru að meðaltali 3000 áhorfendur í heildina á leikjunum. Nú verða 3000 Íslendingar á hverjum leik, þetta verður alveg magnað.\"
„Auðvitað er hópurinn spenntur en við höldum okkur á jörðinni og reynum að nýta spennuna í einbeitingu. En fólk sem maður hittir út á götu það er miklu spenntara. Það eru allir spenntir.\"
Rakel býst ekki við því að taka með sér gítarinn til Hollands en hún hefur vakið athygli bæði á samfélagsmiðlum og í heimsókn Arnars Arnarssonar til hennar og Andra Rúnars á dögunum fyrir gítarleik sinn.
„Ég hugsa ekki. Það er hundleiðinlegt að ferðast með gítarinn. Kannski að við finnum einhvern gítar úti í Hollandi. Það er alltaf hægt að plata mig í gítarspil.\"
Viðtalið í heild sinni við Rakel má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.