Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér að áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   þri 14. ágúst 2018 21:27
Sævar Ólafsson
Brynjar: Við erum í góðri stöðu
HK menn á sigurbraut á nýjan leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn Gunnarsson var að vonum sáttur með stigin þrjú sem komu lærisveinum hans á sigurbraut á nýjan leik í blóðugri baráttu um Pepsi deildarsæti.

„Jájá sáttur – nokkuð sáttur við leikinn, við vorum hættulegir í fyrri hálfleik og þurftum að finna smá jafnvægi á milli þess að finna þriðja markið og að halda hreinu og halda út í seinni hálfleik. Svo ég er mjög ánægður með 2-0 sigur og að fá ekki á okkur mark og þrjú stig“


Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 -  2 HK

HK-ingar sigla inn í tvo virkilega mikilvæga leiki á komandi misserum gegn Þór og ÍA sem eru harðri baráttu um Pepsideildarsæti. Bæði lið unnu í dag.

„Þór er næsti leikur held ég alveg örugglega – á laugardaginn, þannig að það (framhaldið) lítur bara vel út, eins og þú segir, við erum í góðri stöðu – en hellingur af stigum til að spila um og við erum svo sem ekkert farnir að horfa lengra en á næsta leik svaraði Brynjar af stóískri ró yfir framhaldinu.

„Við hefðum getað bætt við þriðja markinu en hefðum á einhverjum tímapunkti líkega getað fengið á okkur mark – mér fannst skynsamlegra að að tryggja okkur aðeins til baka heldur en að fá á okkur mark og vera undir pressu kannski í seinni hálfleik. Við hefðum svo sem alveg getað skorað þriðja markið í síðari hálfleik en það gerðist ekki“

Leiknismenn bitu ögn frá sér í síðari hálfleiknum og lág þriðja mark leiksins í raun í loftinu á köflum.

„Við náðum að stýra aðeins leiknum og sáum út síðari hálfleikinn“

Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner