Fotbolti.net
14.08.26 - 19:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stórkostlegur sigur hjá Freysa - Júlíus á skotskónum

Stórkostlegur sigur hjá Freysa - Júlíus á skotskónum
Canon

Mynd: Rosenborg

Rosenborg er á miklu flugi eftir að Freyr Alexandersson tók við liðinu fyrir tveimur mánuðum síðan. Liðið hefur unnið fimm leiki í norsku deildinni og tapað einum. Liðið fékk norsku meistarana í Viking í heimsókn í kvöld sem er í harðri toppbaráttu.
Rosenborg var með 1-0 forystu í hálfleik en Viking jafnaði metin undir lokin. Rosenborg skoraði svo sigurmark þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Freyr er búinn að rífa Rosenborg upp úr fallbaráttu og í 6. sæti með 24 stig eftir 17 umferðir.

Viking er í 2. sæti með 40 stig, stigi á eftir Bodö/Glimt. Amin Cosic var ekki með Viking í kvöld.

Júlíus Magnússon skoraði fyrsta mark Elfsborg í 3-0 sigri á Vasteras í sænsku deildinni. Ari Sigurpálsson kom inn á 83. mínútu og Júlíus var tekinn af velli. Elfsborg er í 3. sæti með 27 stig eftir 17 umferðir.

Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði AGF sem tapaði 2-1 gegn Viborg í dönsku deildinni. Tómas Óli Kristjánsson kom inn á sem varamaður. Valgeir Lunddal Friðriksson samdi við Viborg í vikunni en var ekki í hópnum í kvöld.

AGF er með tvö stig eftir þrjár umferðir en Viborg er með sjö stig eftir fjórar umferðir.

Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Aalborg sem tapaði 3-0 gegn Fredericia í næst efstu deild í Danmörku. Aalborg er með sjö stig eftir fjórar umferðir.

Hellerup, lærisveinar Antons Inga Leifssonar, unnu FA 2000 2-1 í dönsku C-deildinni. Hellerup er í 7. sæti með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

St. Pauli gerði 2-2 jafntefli gegn Holstein Kiel í þýsku B-deildinni. Gísli Gottskálk Þórðarson gekk til liðs við félagið á dögunum en meiddist illa á sinni fyrstu æfingu. St. Pauli er með tvö stig eftir tvær umferðir.

Stórkostlegur sigur hjá Freysa - Júlíus á skotskónum
Canon

Mynd: Elfsborg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.