14.11.26 - 19:43
Ívan Guðjón Baldursson
HB Köge á blússandi siglingu - Fiorentina vann

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: Instargam

Það komu nokkrar íslenskar fótboltakonur við sögu í leikjum dagsins í Evrópu og var Emelía Óskarsdóttir í byrjunarliði HB Köge sem vann þægilegan sigur á útivelli.
Emelía lék fyrstu 84 mínúturnar og er Köge með sjö stiga forystu á toppi dönsku deildarinnar eftir sigurinn.
Katla Tryggvadóttir og Íris Ómarsdóttir voru þá saman í byrjunarliði Fiorentina sem hafði betur gegn Lazio í efstu deild á Ítalíu. Íslendingaliðið er í þriðja sæti, með 13 stig eftir 7 umferðir.
Á sama tíma tapaði Parma gegn Roma í ótrúlegum ellefu marka leik. Birta Georgsdóttir sat á bekknum hjá Parma, sem náði forystunni fjórum sinnum í leiknum en tapaði að lokum.
Parma er í fallbaráttu með 5 stig eftir 7 umferðir á meðan Rómverjar eru með fullt hús stiga.
Í þýsku titilbaráttunni sat Glódís Perla Viggósdóttir allan tímann á bekknum í þægilegum sigri hjá FC Bayern á útivelli gegn Wolfsburg.
Glódís er fyrirliði Bayern en hefur ekki komið við sögu síðan í lok október vegna hnémeiðsla. Bayern er með fullt hús stiga eftir tíu umferðir af deildartímabilinu - með sex stiga forystu á Wolfsburg sem situr í öðru sæti.
Í næstefstu deild í Svíþjóð lék Eyrún Embla Hjartardóttir allan leikinn er varalið Häcken tapaði heimaleik. B-lið Häcken er þegar fallið úr deildinni, með 9 stig eftir 26 umferðir.
Að lokum skoraði Cloé Lacasse eina mark Utah Royals í tapi gegn Washington Spirit í Bandaríkjunum.
Odense 1 - 4 HB Köge
Fiorentina 2 - 1 Lazio
Roma 6 - 5 Parma
Wolfsburg 1 - 4 Bayern
Hacken B 1 - 3 Örebro
Washington Spirit 2 - 1 Utah Royals