14.11.26 - 19:23
Ívan Guðjón Baldursson
U19: Þurfa úrslitaleik eftir svekkjandi tap

Mynd: KSÍ

Mynd: EPA

Mynd: KSÍ
U19 landslið karla byrjaði undankeppni EM gríðarlega vel. Strákarnir komu til baka gegn Evrópumeisturum Spánar eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í fyrri hálfleiknum og urðu lokatölur 2-2.

TENGT EFNI
U19: Frábær endurkoma gegn Evrópumeisturum Spánar
Í dag spiluðu strákarnir svo við Finnland og var staðan markalaus allt þar til á lokamínútunum, þegar Finnar náðu að pota inn sigurmarki sem var afar svekkjandi fyrir Ísland.
Undanriðillinn er spilaður í Wales og komast þrjár þjóðir af fjórum áfram á lokastig undankeppninnar.
Ísland er, alveg eins og Wales, með eitt stig fyrir lokaumferðina. Innbyrðisviðureign þjóðanna verður því úrslitaleikur um áframhaldandi þátttöku í undankeppninni.
Finnar og Spánverjar berjast þá um toppsæti riðilsins, með fjögur stig á haus. Lokaumferðin verður spiluð á þriðjudaginn.