Fotbolti.net
14.11.26 - 17:00
Ívan Guðjón Baldursson

Argentína tapaði gegn Úrúgvæ: Við vorum sterkara liðið

Argentína tapaði gegn Úrúgvæ: Við vorum sterkara liðið
Canon

Mynd: EPA

Það fóru nokkrir vináttulandsleikir fram hjá Suður-Ameríkuþjóðum í nótt og er þar helst að frétta að Argentína tapaði heimaleik gegn Úrúgvæ.
Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"
TENGT EFNI

Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"

Staðan var markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik og skoruðu gestirnir tvö mörk í upphafi síðari hálfleiks. Fyrra markið var einstaklega óheppilegt sjálfsmark eftir aukaspyrnu og skoraði Maxi Araújo það seinna með skemmtilegum skalla eftir hornspyrnu.

Julián Alvarez minnkaði muninn fyrir heimamenn sem fóru svo illa með góð færi til að jafna leikinn.

„Við áttum ekki skilið að tapa þessum leik. Úrúgvæ skoraði tvö skrýtin mörk upp úr þurru, við vorum sterkara liðið," sagði Enzo Fernández, miðjumaður Argentínu og Manchester City, að leikslokum.

Úrvalsdeildarleikmennirnir Lisandro Martínez, Alexis Mac Allister og Gerónimo Rulli voru í byrjunarliði Argentínu á meðan Ronald Araújo og Rodrigo Bentancur voru meðal byrjunarliðsmanna Úrúgvæ, sem byrjaði með Darwin Núnez í fremstu víglínu.

Guillermo Maripán skoraði þá eina mark leiksins er Kólumbía hafði betur gegn Síle. Maripán skoraði í eigið mark og urðu lokatölur 1-0. Daniel Munoz og Jefferson Lerma voru úrvalsdeildarleikmennirnir í byrjunarliði Kólumbíu á meðan Dario Osorio byrjaði í liði Síle.

Nafnarnir Jordy og Moisés Caicedo skoruðu þá mörkin í sigri Ekvador gegn Kosta Ríka. Piero Hincapié og Willian Pacho voru einnig í byrjunarliðinu.

Sardar Azmoun, fyrrum leikmaður Bayer Leverkusen og AS Roma, skoraði að lokum í sigri Íran gegn Palestínu.

Argentína 1 - 2 Úrúgvæ
0-1 Leonardo Balerdi ('48, sjálfsmark)
0-2 Maxi Araujo ('53)
1-2 Julian Alvarez ('73)

Kólumbía 1 - 0 Síle
1-0 Guillermo Maripan ('35, sjálfsmark)

Ekvador 2 - 0 Kosta Ríka
1-0 Jordy Caicedo ('22)
2-0 Moises Caicedo ('83, víti)

Perú 2 - 0 Bólivía

Barein 3 - 1 Jemen

Kína 2 - 0 Malasía

Taívan 0 - 3 Kirgistan

Palestína 0 - 2 Íran
Argentína tapaði gegn Úrúgvæ: Við vorum sterkara liðið
Canon

Mynd: EPA

Argentína tapaði gegn Úrúgvæ: Við vorum sterkara liðið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.