Fotbolti.net
14.11.26 - 21:43
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum

Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum
Canon

Mynd: EPA

Portúgal 1 - 4 Danmörk
0-1 Pierre-Emile Hojbjerg ('43 , víti)
0-2 Rasmus Hojlund ('50 )
0-3 Rasmus Hojlund ('57 )
0-4 Joachim Andersen ('75 )
1-4 Bernardo Silva ('93)
Þjóðadeildin: Haaland með mark og stoðsendingu
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Haaland með mark og stoðsendingu

Áhugaverðum fótboltaleik var að ljúka í Portúgal þar sem frændur okkar í danska landsliðinu unnu afar óvæntan stórsigur gegn lærlingum Jorge Jesus.

Það var lítið að frétta í jöfnum og bragðdaufum fyrri hálfleik þar til á lokamínútunum þegar Danir gerðu sig líklega til að skora. Þeir komu boltanum fyrst í netið en ekki dæmt mark vegna afar naumrar rangstöðu og skömmu síðar fengu þeir dæmda vítaspyrnu fyrir hendi. Rasmus Höjlund skallaði fyrirgjöf frá Gustav Isaksen í hendina á varnarmanni Portúgala og vítaspyrna dæmd eftir að dómarinn var sendur í skjáinn.

Pierre-Emile Höjbjerg skoraði af miklu öryggi af vítapunktinum og tvöfaldaði Höjlund forystuna í upphafi síðari hálfleiks. Varnarmenn Portúgal skildu hann einn eftir á auðum sjó innan vítateigs og gerði Mikkel Damsgaard vel að koma boltanum til hans.

Sjö mínútum síðar var Höjlund aftur á ferðinni, í þetta sinn eftir laglegt einstaklingsframtak. Höjlund tók einföld skæri og plataði Renato Veiga alltof auðveldlega til að skapa sér pláss fyrir skotið.

Portúgalir áttu engin svör og voru Danir líklegri til að bæta við forystuna. Joachim Andersen setti fjórða mark gestanna frá Danmörku með skalla eftir aukaspyrnu og komust samherjar hans nálægt því að setja fimmta markið, en tókst ekki.

Portúgalir fengu lítið af færum en komu þó boltanum í netið í uppbótartíma. Bernardo Silva kom inn af bekknum og setti boltann í netið til að skora fánamark.

Lokatölur urðu því 1-4 og eru Danir í öðru sæti riðilsins fyrir lokaleikinn, sem verður á heimavelli gegn nágrönnunum frá Noregi. Portúgal er á toppinum, þremur stigum fyrir ofan Dani þrátt fyrir tapið.

Tvö efstu lið riðilsins fara áfram í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar. Danir sitja í öðru sæti fyrir lokaumferðina og nægir jafntefli gegn Norðmönnum til að tryggja sig í úrslitakeppnina.

Norðmenn þurfa sigur gegn Dönum til að komast í úrslitakeppnina.
Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum
Canon

Mynd: EPA

Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.