Manchester City segir að fullyrðingar um að leikmenn liðsins hafi hæðst að Sean Cox eða Hillsborough slysinu með níðsöngvum séu algjörlega rangar.
Sean Cox er stuðningsmaður Liverpool sem varð fyrir alvarlegum heilaskaða eftir líkamsárás fyrir leik gegn Roma á Anfield.
Sean Cox er stuðningsmaður Liverpool sem varð fyrir alvarlegum heilaskaða eftir líkamsárás fyrir leik gegn Roma á Anfield.
Myndband birtist á netinu þar sem leikmenn City syngja breytta útgáfu af „Allez, Allez, Allez" söngnum sem stuðningsmenn Liverpool hafa kyrjað. Myndbandið er tekið upp í flugvél eftir að City tryggði sér Englandsmeistaratitilinn um liðna helgi.
Í breytta textanum er meðal annars sungið um að stuðingsmenn Liverpool séu lamdir úti á götu og að grátið sé í stúkunni.
„Umræddur söngur hefur verið sunginn reglulega 2018-19 og er um úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Kænugarði. Það er ekki heil brú í fullyrðingum um að sungið sé um Sean Cox eða Hillsborough," segir talsmaður City.
Manchester City players singing “Allez, Allez, Allez” after winning the Premier League 😂😂😂😂 #AllTheWayToKiev pic.twitter.com/eblrEF9nCr
— YourMCFC (@YourMCFC) May 14, 2019
Athugasemdir