Skoski þjálfarinn Tam Courts er hættur með Dundee United og tekinn við þjálfun ungverska liðsins Búdapest Honved. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ungverska félaginu.
Courts náði afburðar árangri með lið Dundee á síðasta tímabili og tókst að koma liðinu í Sambandsdeild Evrópu.
Hann tók þá óvæntu ákvörðun í gær að segja starfi sínu lausu og reyna fyrir sér annars staðar.
Í dag var hann svo kynntur sem nýr þjálfari Búdapest Honved í Ungverjalandi.
Liðið leikur í efstu deild og náði með naumindum að bjarga sér frá falli á síðustu leiktíð.
Viðar Ari Jónsson er á mála hjá félaginu en hann kom til Honved frá Sandefjord í byrjun ársins.
Athugasemdir