AC Milan búið að ná samkomulagi við Amorim

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að AC Milan sé búið að ná samkomulagi við Rúben Amorim, fyrrum stjóra Manchester United, um að hann taki við stjórnartaumunum af Massimiliano Allegri.
Greint er frá því að Amorim muni gera tveggja ára samning með möguleika á ári til viðbótar.
Mauricio Pochettino og Arne Slot eru meðal nafna sem hafa verið orðuð við Milan en nú stefnir allt í að Amorim verði kynntur á næstu klukkutímum.
Portúgalinn Amorim var rekinn frá Manchester United á liðnu tímabili.