Ancelotti hefur áhyggjur: Spiluðum ekki nógu vel

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Carlo Ancelotti þjálfari Brasilíu var ekki sérlega ánægður eftir jafntefli gegn Marokkó í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins.
Marokkó var sterkara liðið á löngum köflum en Brassar sýndu flotta takta og skoraði Vinícius Júnior frábært mark til að bjarga stigi.
„Ég hef smá áhyggjur, við töpuðum mikið af einvígum og héldum boltanum ekki nógu vel. Við byrjuðum leikinn illa en urðum betri í síðari hálfleik. Þetta var erfiður leikur gegn sterkum andstæðingum. Við áttum erfitt með að spila okkur úr pressunni og ég viðurkenni að ég bjóst við betri frammistöðu, en svona getur fótboltinn verið. Við þurfum að einbeita okkur að næsta leik," sagði Ancelotti.
„Mér finnst eins og strákarnir hafi verið stressaðir í byrjun. Marokkó var betra liðið í fyrri hálfleik og þess vegna gerði ég tvöfalda skiptingu í hálfleik og aðra skiptingu á 61. mínútu.
„Ég vil ekki benda á neina einstaklinga en staðreyndin er að við spiluðum ekki nægilega vel í þessum leik. Ég er ekki ánægður með þessi úrslit en heldur ekki vonsvikinn. Maður vinnur ekki heimsmeistaramót í fyrsta leiknum."
Brasilía er sigursælasta þjóð í sögu heimsmeistaramótsins með 5 titla frá upphafi. Ítalía og Þýskaland koma næst á eftir með 4 titla hvort og svo er Argentína með 3 titla.

TENGT EFNI
HM: Jafnt í fyrsta stórleiknum
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!