Fotbolti.net
15.06.26 - 18:39
Brynjar Ingi Erluson

Söguleg frumraun markvarðarins

Söguleg frumraun markvarðarins
Canon

Mynd: EPA

Vozinha, fertugur markvörður Grænhöfðaeyja, setti nýtt met í markalausa jafnteflinu gegn Evrópumeisturum Spánverja á heimsmeistaramótinu í kvöld.
Markvörðurinn komst í fámennan hóp þegar tilkynnt var um byrjunarliðin fyrir leikinn.

Hann er aðeins níundi maðurinn yfir fertugu til að spila á heimsmeistaramóti og annar leikmaðurinn til að gera það á mótinu sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, á eftir Manuel Neuer.

Vozinha bauð svo upp á sannkallaða veislu með stórkostlegum vörslum gegn einni sterkustu þjóð heims og hlaut nafnbótina maður leiksins hjá FIFA.

Ekki nóg með það, heldur varð hann elsti markvörðurinn í sögu HM til að halda hreinu í frumraun sinni, en hann átti alls sjö vörslur í leiknum.

Ótrúleg byrjun hjá nýliðunum sem eru komnir með fyrsta stigið á HM.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.