Fotbolti.net
26.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ronaldo tekinn af velli í hálfleik í mögnuðum sigri

Ronaldo tekinn af velli í hálfleik í mögnuðum sigri
Canon

Mynd: EPA

Al Nassr vann ótrúlegan endurkomusigur á Al Ettifaq í þriðju umferð sádi arabísku deildarinnar í gær.
Bento, markvörður Al Nassr, fékk rautt spjald snemma leiks og Al Ettifaq var með 2-0 forystu í hálfleik.

Ange Postecoglu, stjóri Al Nassr, ákvað að tak Cristiano Ronaldo af velli í hálfleik. Ronaldo sagði sjálfur frá því eftir leikinn að það hafi verið fyrir bestu þar sem liðið þurfti að sækja öðruvísi manni færri og vörn Al Ettifaq var með mikinn fókus á honum.

Þessi skipting heppnaðist mjög vel en Al Nassr vann leikinn 3-2. Sadio Mane skoraði tvennu og Joao Felix lagði upp tvö mörk. Al Nassr er á toppnum með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.