Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 15. júlí 2021 16:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísak Snær spáir í tólftu umferð Lengjudeildarinnar
Lengjudeildin
Ísak Snær
Ísak Snær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Snær Þorvaldsson er á láni hjá ÍA en er samningsbundinn Norwich á Englandi.

Hann er spámaður umferðarinnar í Lengjudeildinni en 12. umferð deildarinnar hefst í kvöld með fjórum leikjum, heldur áfram með einum leik á morgun og lýkur með einum leik á laugardag.

Orri Steinn Óskarsson spáði í leiki elleftu umferðar og var með fjóra leiki rétta.

Fram 2 - 1 ÍBV (Í kvöld - 18:00)
Verður spennandi leikur mikið af færum en Framarar taka þetta á loka mínútunum.

Selfoss 2 - 3 Kórdrengir (Í kvöld - 19:15)
Verða læti í þessum leik Selfoss kemst 1-0 yfir en Kórdrengir klara þetta í seinni



Afturelding 2 - 0 Víkingur Ólafsvík (Í kvöld - 19:15)
Afturelding vinnur þetta þægilega. Heyrði að Oliver Beck ætli að setja hann úr skalla

Grótta 1 - 1 Fjölnir (Í kvöld - 19:15)
Verður ekki mikið af færum í þessum leik en Jóhann Árni setur hann beint úr aukaspyrnu.

Grindavík 0 - 1 Þór (Á morgun - 18:00)
Steindauður leikur en Þórsarar fá víti seint í leiknum.

Vestri 3 - 1 Þróttur (Á laugardag 13:00)
1-1 og mjög spennandi í fyrri hálfleik en síðan fær Þróttur tvö klaufa mörk á sig
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner