2. umferð Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildar Evrópu fer fram í kvöld en það er nóg af áhugaverðum leikjum á dagskrá. Manchester United heimsækir Sheriff til Moldóvu.
Arsenal og PSV áttu að eigast við í A-riðli Evrópudeildarinnar en þeim leik var frestað til 20. október. Alfons Sampsted og hans menn í Bodö/Glimt mæta Zürich í sama riðli.
Roma spilar við HJK Helsinki í C-riðli. Í E-riðli fer Manchester United til Moldóvu og mætir þar Sheriff sem spilaði feykivel í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.
Í F-riðli spilar Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland við Lazio. Þá er vert að fylgjast með lærisveinum Milosar Milojevic í Rauðu stjörnunni mæta Trabzonspor.
Silkeborg fær West Ham í heimsókn í B-riðli Sambandsdeildar Evrópu. Stefán Teitur Þórðarson er á mála hjá Silkeborg en alla leiki dagsins má sjá hér fyrir neðan.
Leikir dagsins:
Evrópudeildin:
A-riðill
19:00 Arsenal - PSV LEIK FRESTAÐ
19:00 Bodo-Glimt - Zurich
B-riðill
19:00 Dynamo K. - AEK Larnaca
19:00 Rennes - Fenerbahce
C-riðill
19:00 Betis - Ludogorets
19:00 Roma - HJK Helsinki
D-riðill
19:00 St. Gilloise - Malmo FF
19:00 Braga - Union Berlin
E-riðill
16:45 Real Sociedad - Omonia
16:45 Sherif - Man Utd
F-riðill
16:45 Midtjylland - Lazio
16:45 Feyenoord - Sturm
G-riðill
16:45 Olympiakos - Freiburg
16:45 Qarabag - Nantes
H-riðill
16:45 Trabzonspor - Rauða stjarnan
16:45 Mónakó - Ferencvaros
Sambandsdeildin
A-riðill
19:00 Rigas FS - Hearts
19:00 Istanbul Basaksehir - Fiorentina
B-riðill
19:00 Steaua - Anderlecht
19:00 Silkeborg - West Ham
C-riðill
19:00 Lech - Austria V
19:00 Hapoel Beer Sheva - Villarreal
D-riðill
19:00 Partizan - Nice
19:00 Köln - Slovacko
E-riðill
16:45 Apollon Limassol - Dnipro
16:45 AZ - Vaduz
F-riðill
16:45 Djurgarden - Molde
16:45 Gent - Shamrock
G-riðill
16:45 Slavia Prag - Ballkani
16:45 Cluj - Demir Grup Sivasspor
H-riðill
16:45 Zalgiris - Basel
Athugasemdir