Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
Niðurtalningin - Hemmi hefur allt að sanna
Niðurtalningin - Ekki meiri Forsetabikar
Fótbolta nördinn - 433 vs RÚV
Niðurtalningin - Er verið að vanmeta Framara?
Niðurtalningin - Horft fram á við með Magga Hödd og Frikka Dór
Hugarburðarbolti GW 31 Met í rauðum spjöldum!
Enski boltinn - Allir íslenskir stuðningsmenn í fýlu
Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
   fös 15. nóvember 2013 12:41
Elvar Geir Magnússon
Gummi Ben: Hugarfarið gæti verið stærsti veikleiki Króata
Guðmundur Benediktsson
Guðmundur Benediktsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Stöð 2 Sport
Ísland og Króatía mætast í kvöld
Ísland og Króatía mætast í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson, aðstoðarþjálfari Breiðabliks og íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, var í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag, en þátturinn er í gangi núna. Hann ræddi um leik Íslands og Króatíu sem fer fram í kvöld.

Ekki einn einasti maður að kvarta yfir landsleikjahléi

Guðmundur lýsir leiknum í beinni útvarpsútsendingu á Bylgjunni í kvöld, en hann segist þó afar bjartsýnn fyrir leikinn og spáir markalausu jafntefli. Hann segist þá afar spenntur fyrir leiknum eins og flestir Íslendingar.

,,Ég held að við getum öll verið sammála um það að þetta verður ekki mikið merkilegra í kvöld og á þriðjudaginn. Hlakka gríðarlega til," sagði Guðmundur Benediktsson í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag.

,,Menn eru að kvarta mikið yfir þegar það kemur landsleikjahlé að það sé ekki enska og þetta og hitt, en ég hef ekki séð neinn einasta kjaft kvarta yfir því núna. Þetta er bara miklu stærra en hinn venjulegi leikur og þó svo maður sé að lýsa nokkrum leikjum þá er allt undir þarna og maður getur haldið með öðru liðinu."

,,Ég er hræddur um að England - Síle þarf að koma aðeins seinna í kvöld kannski fyrir þá sem fá ekki nóg, þá geta þeir horft á hann í endursýningu."


Ofpeppið hefur ekki áhrif á leikmenn liðsins, heldur eykur sjálfstraustið

Það er oft þannig að þegar landsliðinu hefur gengið vel að þá hafa hlutirnir farið niður á við þegar umfjöllunin verður mikil, en Gummi á ekki von á því að það gerist núna, enda sé liðið ekki með sömu leikmenn.

,,Þetta er alger draumur og margir sem tala um það, þessi svartsýni. Nú er of mikið pepp og umfjöllun, en ég er að segja það aftur og aftur að við erum ekki með sömu leikmenn, þetta hefur ekki áhrif og það eru gerðar kröfur og þeir hafa verið atvinnumenn frá unga aldri og þetta mun auka sjálfstraustið."

,,Það er svo ótrúlega erfitt að gera sér einhverja mynd úr þessu, þessi fyrrum Júgóslavíu ríki eru óútreiknanleg. Þeir gætu tekið upp á því að bursta okkur hér, en gætu svo tekið upp á því að skíta á sig. Bæði lið munu byrja á ákveðnu þukli og reyna að finna einhverja veikleika."

,,Það er erfiðara fyrir íslenska liðið að átta sig á króatíska liðinu, en ég er búinn að sveiflast á milli 0-0 og 1-1, því ég yrði afar ánægður með þau úrslit. Það er aðallega hjartað að tala heldur en hausinn, en 0-0 yrði stórkóstleg úrslit."


Hugarfarið gæti farið með króatíska liðið

Hann segir að hugarfar króatíska liðsins gæti farið illa með þá, en bæði þjálfarinn og leikmennirnir hafa rætt um að vanmeta ekki íslenska liðið.

,,Hugarfarið gæti verið stærsti veikleiki Króata, þó svo þeir séu að blaðra um að það megi ekki vanmeta Ísland. Uppeldið er þar að þeir líta niður á Ísland sem knattspyrnuþjóð og fleiri þjóðir sem hafa ekki gert neitt á þessum mælikvarða, það er mín von að það verði þannig," sagði hann ennfremur.

Hann hefur þá ekki hugmynd hver Raggi Sig er ef hann fagnar fyrir framan hann

Hann var spurður fyrir leikinn hvort Mario Mandzukic, framherji króatíska landsliðsins, myndi hlaupa upp að Ragnari Sigurðssyni, varnarmanni íslenska liðsins ef hann myndi skora, en Gummi sagði að Mandzukic hefði þá greinilega enga hugmynd um hver Raggi Sig er.

,,Við erum með hestinn Mandzukic sem verður klárlega erfitt að eiga við. Það var einhver sem spurði mig ef Mandzukic myndi skora hvort hann myndi hlaupa upp að Ragga, en ég sagði strax að hann hefur ekki hugmynd hver Raggi er, svo ég efast um það."

,,Þeir reyna mikið fyrirgjafir, Srna verður í lykilhlutverki. Hann leitar í holuna á Mandzukic og við verðum að skoða það mjög vel,"
sagði hann að lokum.
Slapp
Athugasemdir
banner