Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 15. nóvember 2020 17:15
Ívan Guðjón Baldursson
Trent: Lítið hægt að gera til að stöðva Traore
Trent Alexander-Arnold, bakvörður Liverpool og enska landsliðsins, hefur miklar mætur á Adama Traore, kantmanni Wolves.

Alexander-Arnold er meðal efnilegustu hægri bakvarða heims en viðurkennir að hann á í erfiðleikum þegar hann mætir hinum leiftursnögga Traore.

Alexander-Arnold var beðinn um að búa til hinn fullkomna knattspyrnumann með því að blanda eiginleikum mismunandi leikmanna saman í einn ofurleikmann. Hann valdi hraðann hans Traore.

„Það er lítið hægt að gera til að stöðva Traore. Ég hef aldrei verið jafn varnarlaus og ég var gegn honum, það er ekki mennskt hvernig hann getur breytt um stefnu og rokið strax aftur af stað á fullri ferð," sagði Alexander-Arnold við Goal.

„Þú munt alltaf mæta einhverjum sem er sneggri en þú, það er óumflýjanlegt, en þá þarf maður að nota hausinn og finna sér betri stöður varnarlega. Það nægir ekki gegn Traore því hann er svo ótrúlega kraftmikill auk þess að vera hraður. Maður getur ekki haldið í við hann.

„Ég man þegar hann kom á Anfield á síðustu leiktíð. Ég hafði aldrei upplifað neitt líkt þessu, þetta er ótrúlegur leikmaður."


Traore er fjölhæfur leikmaður en hefur ekki fengið mörg tækifæri í byrjunarliði Úlfanna, heldur kemur hann yfirleitt inn af bekknum. Hann leikur yfirleitt sem hægri vængbakvörður eða kantur og getur einnig spilað vinstra megin.

Traore er 24 ára gamall og á fimm landsleiki að baki fyrir Spán.
Athugasemdir
banner