Fotbolti.net
15.11.26 - 16:02
Brynjar Ingi Erluson

Ótrúlegt tap Íslendingaliðsins

Cecilía fékk á sig þrjú mörk á lokamínútunum

Cecilía fékk á sig þrjú mörk á lokamínútunum

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Íslendingalið Inter glutraði niður tveggja marka forystu undir lokin og tapaði 3-2 fyrir Juventus í Seríu A á Ítalíu í dag.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur farið á kostum með Inter á tímabilinu og ekki fengið á sig mark í fyrstu sjö umferðum deildarinnar.

Hún var enn á ný að eiga frábæran leik gegn Juventus og var Inter með 2-0 forystu þegar rúm mínúta var eftir af venjulegum leiktíma.

Þá fékk Cecilía hins vegar sitt fyrsta mark á sig á tímabilinu og það sem verra var að Juventus bætti við tveimur mörkum áður en flautað var til leiksloka. Ótrúlegur viðsnúningur og grátlegt fyrir Inter að tapa leiknum eftir að hafa verið í svo góðri stöðu.

Cecilía varði alls átta skot í leiknum, en það dugði því miður ekki til að tryggja liðinu stig að þessu sinni.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var einnig í byrjunarliði Inter sem situr í öðru sæti deildarinnar með 16 stig.

Hildur Antonsdóttir var þá í byrjunarliði Newcastle sem gerði markalaust jafntefli við erkifjendurna í Sunderland í ensku B-deildinni.

Newcastle er á toppi deildarinnar með 20 stig og hefur enn ekki tapað leik á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.