Kane til Barca - Arsenal og Barcelona fylgjast með ungstirni - Liverpool með augastað á Kevin - Branthwaite til Man Utd?
   lau 16. janúar 2021 22:38
Ívan Guðjón Baldursson
Hasenhuttl: Hefðum ekki átt skilið að fá stig
Ralph Hasenhüttl horfði á sína menn í Southampton tapa í hörkuleik gegn Leicester í kvöld. Southampton sýndi þokkalega frammistöðu en þegar allt kom til alls voru heimamenn í Leicester einfaldlega betri.

Hasenhüttl var svekktur að leikslokum en jákvæður á sama tíma.

„Það er aldrei gaman að tapa en þetta var opinn leikur og við fengum góð færi. Við erum augljóslega sterkt lið sem gefst aldrei upp en andstæðingarnir sýndu meiri gæði heldur en við í kvöld," sagði Hasenhüttl.

„Maddison gerði ótrúlega vel í fyrsta markinu og við fengum góð færi sem okkur tókst ekki að klára. Gæðin gerðu herslumuninn."

Southampton er með átta leikmenn fjarverandi vegna meiðsla og situr í áttunda sæti, með 29 stig eftir 18 umferðir.

„Næstu leikir verða mjög erfiðir, við erum með langan meiðslalista og ekki nægilega breidd í hópnum. Góðu fréttirnar eru þær að við erum með 29 stig. Það getur enginn tekið þau stig af okkur.

„Við erum með níu meidda leikmenn og mættum til leiks í kvöld með okkar sterkasta lið af þeim sem eru í standi. Strákarnir gerðu sitt besta en það nægði ekki, andstæðingarnir voru betri og við hefðum ekki átt skilið að fá stig."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 10 8 1 1 18 3 +15 25
2 Man City 10 6 1 3 20 8 +12 19
3 Liverpool 10 6 0 4 18 14 +4 18
4 Sunderland 10 5 3 2 12 8 +4 18
5 Bournemouth 10 5 3 2 17 14 +3 18
6 Tottenham 10 5 2 3 17 8 +9 17
7 Chelsea 10 5 2 3 18 11 +7 17
8 Man Utd 10 5 2 3 17 16 +1 17
9 Crystal Palace 10 4 4 2 14 9 +5 16
10 Brighton 10 4 3 3 17 15 +2 15
11 Aston Villa 10 4 3 3 9 10 -1 15
12 Brentford 10 4 1 5 14 16 -2 13
13 Newcastle 10 3 3 4 10 11 -1 12
14 Everton 10 3 3 4 10 13 -3 12
15 Fulham 10 3 2 5 12 14 -2 11
16 Leeds 10 3 2 5 9 17 -8 11
17 Burnley 10 3 1 6 12 19 -7 10
18 West Ham 10 2 1 7 10 21 -11 7
19 Nott. Forest 10 1 3 6 7 19 -12 6
20 Wolves 10 0 2 8 7 22 -15 2
Athugasemdir
banner
banner