Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. júní 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bolton fær Trafford aftur frá Man City (Staðfest)
Trafford hitaði upp á Old Trafford fyrir leik City og Manchester United í deildabikarnum í fyrra.
Trafford hitaði upp á Old Trafford fyrir leik City og Manchester United í deildabikarnum í fyrra.
Mynd: EPA
James Trafford er nítján ára markmaður sem er samningsbundinn Manchester City.

Hann var á láni hjá Bolton í C-deildinni seinni hluta síðasta tímabils og er mikil ánægja með hann þar.

Bolton vildi fá Trafford aftur í sínar raðir og í gær var staðfest að markmaðurinn mun verja mark liðsins á næsta tímabili, kemur á lánssamningi út komandi leiktíð.

Hjá Bolton hittir Trafford fyrir Jón Daða Böðvarsson sem gekk í raðir félagsins í janúar.

Trafford hefur leikið fyrir yngri landslið Englands og á að baki einn U21 landsleik.


Athugasemdir
banner
banner