Fotbolti.net
10.11.26 - 22:24
Brynjar Ingi Erluson

Spænski konungsbikarinn: Liverpool-maðurinn skoraði úr aukaspyrnu

Harvey Elliott skoraði beint úr aukaspyrnu

Harvey Elliott skoraði beint úr aukaspyrnu

Canon

Mynd: EPA

Enski miðjumaðurinn Harvey Elliott var á skotskónum hjá Valencia þegar liðið tryggði sér örugglega sæti í aðra umferð spænska konungsbikarsins í kvöld.
Elliott hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína og leikform síðan hann gekk til liðs við Valencia á láni frá Liverpool í sumar.

Hann hefur fengið takmarkaðan spiltíma hjá félaginu, auk þess að hafa fengið heimskulegt rautt spjald á dögunum og hafa stjórnarmenn Valencia íhugað alvarlega að senda hann aftur til Liverpool í janúar.

Í kvöld fékk hann hins vegar tækifæri til að koma sér á rétta braut og nýtti það vel.

Elliott skoraði fjórða mark Valencia í 6-0 stórsigri á Tavernes í bikarnum, en markið kom beint úr aukaspyrnu.

Þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið og vonast hann til að geta byggt ofan á frammistöðuna í kvöld.

Deportivo Alaves, sem leikur einnig í La Liga, tryggði sér sömuleiðis sæti í næstu umferð eftir 6-1 stórsigur á Anaitasuna. Þar fór fyrrum Madrídingurinn Mariano Diaz á kostum, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt til viðbótar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.