Fotbolti.net
16.06.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Maður dagsins á HM - Kominn með sex milljónir fylgjenda eftir stórleikinn gegn Spáni

Vozinha er nú með öll tólin til að gerast áhrifavaldur

Vozinha er nú með öll tólin til að gerast áhrifavaldur

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Vozinha, fertugur markvörður Grænhöfðeyja, er orðinn að samfélagsmiðlastjörnu eftir stórleikinn í markalausa jafnteflinu gegn Evrópumeisturum Spánverja á heimsmeistaramótinu í gær.
HM: Evrópumeistararnir fundu ekki leið framhjá fertugum Vozinha
TENGT EFNI

HM: Evrópumeistararnir fundu ekki leið framhjá fertugum Vozinha

Vozinha var lítt þekkt nafn fyrir leikinn. Hann spilar með Chaves í B-deildinni í Portúgal og hefur flakkað víða um Evrópu á ferlinum, en verið mjög mikilvægur í marki Grænhöfðaeyja.

Hann varði allt sem kom í áttina að honum gegn Spánverjum og átti nokkrar hörkuvörslur frá Mikel Oyarzabal og Ferran Torres.

Sérfræðingar í kringum HM lofsömuðu hann í hálfleik og hvöttu fólk til að fylgja honum á Instagram. Hundruð þúsunda fylgdu honum á fyrsta klukkutímanum og eru núna sex milljónir að fylgja honum og mun sú tala eflaust hækka þegar líður á mótið.

Vozinha, sem var valinn maður leiksins af FIFA, var hæstánægður með frammistöðuna.

„Ég hef lagt hart að mér allt mitt líf fyrir þetta augnablik og þennan draum. Margar kynslóðir áður fyrr dreymdi um þetta en náðu því ekki. Núna rættist draumurinn,“ sagði Vozinha í viðtali eftir leik.

Hér fyrir neðan má síðan sjá viðbrögð Vozinha þegar fréttakona sýnir honum Instagramið hans. Kostuleg viðbrögð.



Spánn 0 - 0 Grænhöfðaeyjar

Maður dagsins á HM - Kominn með sex milljónir fylgjenda eftir stórleikinn gegn Spáni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.