Fotbolti.net
16.07.17 - 18:32
Egill Sigfússon

Hallgrímur Mar: Fyrsta þrennan hjá mér á ævinni

Auglýsing
Grímsi skoraði þrennu í dag

Grímsi skoraði þrennu í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA vann ÍBV 6-3 á Akureyrarvelli í dag í stórskemmtilegum leik þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson fór algjörlega á kostum og setti þrennu auk þess að leggja upp eitt mark.
Hallgrímur sagði það kærkomið að næla loks í þrjú stig eftir að hafa ekki unnið síðan 5.Júní.

Þetta er bara virkilega sætt og virkilega sanngjarnt að mínu mati og við erum búnir að vera spila ágætlega þótt við höfum ekki náð að kroppa í þrjá punkta í síðustu þrem leikjum. Virkilega kærkomið að ná í þrjá punkta í dag.\"

KA lentu 2-0 undir og útlitið var ekki gott en þeir svöruðu því síðan með sex mörkum. Hallgrímur talaði um að KA væru að eiga kafla í hverjum einasta leik þar sem þeir virðist hreinlega vera sofandi.

„Já það virðist vera að það komi alltaf einhver kafli þar sem við erum bara sofandi, í dag var það í byrjun og fengum tvö í grillið. En frábær karakter að koma tilbaka, skora þrjú og vera komnir yfir í hálfleik, bara geggjað hjá liðinu.

Hallgrímur skoraði þrennu í dag og lagði upp eitt mark og var einfaldlega allt í öllu en þetta var hans fyrsta þrenna á ævinni.

„Það er bara mjög gott og þetta er fyrsta þrennan hjá mér á ævinni, auðvitað 3 punktar sem skipta máli en alltaf gaman að skora. Við hefðum getað skorað fleiri í dag og fleiri hefðu getað gert fleiri mörk með smá heppni, en þetta var bara minn dagur í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.