Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 16. ágúst 2022 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reguilon og Winks eiga enga framtíð hjá Spurs
Reguilon
Reguilon
Mynd: EPA
Tanguy Ndombele virðist vera að ganga í raðir Napoli frá Tottenham og þá fækkar um einn í hópnum hjá Tottenham sem Antonio Conte vill losna við. Sergio Reguilon og Harry Winks verða þá þeir einu í hópnum sem eiga sér enga framtíð hjá félaginu.

Að undanförnu hefur Tottenham lánað Joe Rodon til Renne í Frakklandi og Giovani Lo Celso er farinn á láni til Villarreal.

Í síðasta mánuði var fjallað um að þeir Japhet Tanganga og Bryan Gil væru einnig leikmenn sem væru mögulega á útleið frá Tottenham, en miðað við fréttir dagsins fá þeir að vera áfram hjá félaginu.

Valencia hefur þó áhuga á Gil en þar sem Conte hefur heillast af honum á æfingasvæðinu gæti farið svo að Gil fari hvergi. Tanganga hefur þá verið orðaður við AC Milan.
Athugasemdir
banner
banner
banner