Fotbolti.net
08.09.26 - 14:33
Elvar Geir Magnússon

Íslendingaliðið tapaði niður þriggja marka forystu í leik sem lauk þremur dögum eftir að hann hófst

Leikurinn var stöðvaður á laugardag vegna óláta.

Leikurinn var stöðvaður á laugardag vegna óláta.

Canon

Mynd: EPA

Síðustu 25 mínúturnar í leik Utrecht og Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni voru spilaðar í dag en leikurinn var stöðvaður á laugardag vegna óláta áhorfenda sem köstuðu flugeldum út á völlinn.

Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru í byrjunarliði arnanna sem komust 3-0 yfir á laugardaginn. Leikurinn var stöðvaður tímabundið eftir það en hófst svo að nýju stuttu seinna og tókst Utrecht að minnka muninn áður en ákveðið var að hætta leik.

Ákveðið var að klára leikinn í dag bak við luktar dyr og spilaðar voru síðustu 25 mínúturnar auk uppbótartímans.
Flautað af hjá Alfons og Stefáni vegna óláta
TENGT EFNI

Flautað af hjá Alfons og Stefáni vegna óláta

Utrecht náði að bjarga stigi úr leiknum en 3-3 markið kom úr vítaspyrnu sem var dæmd á Alfons í blálokin. Hann lék allan leikinn en Stefán í 85 mínútur.

Go Ahead Eagles er í sjötta sæti með 8 stig eftir fimm leiki en Utrecht er í fimmtánda sæti með 2 stig.

Alfons fékk dæmda á sig vítaspyrnu.

Alfons fékk dæmda á sig vítaspyrnu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.