08.08.26 - 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aston Villa í viðræðum við Bayern

Palhinha í leik með Tottenham

Mynd: EPA

Palhinha í leik með Tottenham

Mynd: EPA
Aston Villa er í viðræðum við Bayern Munchen um kaup á portúgalska miðjumanninum Joao Palhinha.
Sky í Þýskalandi segir að Bayern vilji frekar selja hann en að lána. Palhinha var á láni hjá Tottenham á síðustu leiktíð.

Damian Vidagany, yfirmaður fótboltamála hjá Villa, staðfesti viðræðurnar í viðtali hjá þýska miðlinum Bild.
„Við ðerum í viðræðum en það er ekkert samkomulag í höfn. „Ef eitthvað skyldi gerast, þá er það alltaf byggt á þeirri miklu virðingu sem við berum fyrir FC Bayern. Samband okkar við alla stjórnarmennina er frábært, þess vegna vil ég ekki tjá mig frekar," sagði Vidagany.
Palhinha er 31 árs en hann gekk til liðs við Bayern frá Fulham árið 2024. Hann kom við sögu í 25 leikjum tímabilið 2024-2025 en spilaði síðan 45 leiki í öllum keppnum og skoraði sjö mörk fyrir Tottenham á síðasta tímabili.