Fotbolti.net
16.08.26 - 07:00
Kári Snorrason

4. deild: Endurkoma í fallbaráttuslag á Hellu

4. deild: Endurkoma í fallbaráttuslag á Hellu
Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

KFR 3 - 2 Álafoss
1-0 Helgi Valur Smárason ('21)
1-1 Heiðmar Trausti Elvarsson ('29 )
1-2 Kári Jökull Ingvarsson ('38 )
2-2 Unnar Jón Ásgeirsson ('67 )
3-2 Bjarni Þorvaldsson ('71 )

K
KFR vann endurkomusigur á Álafossi í eina leik gærdagsins í 4. deildinni. Markahrókurinn Helgi Valur Smárason kom KFR yfir eftir rúmar 20 mínútur eftir mark úr vítaspyrnu.

Mosfellingar voru þó ekki lengi að snúa taflinu við og var Álafoss komið yfir á 38. mínútu.

KFR lét það ekki á sig fá og jafnaði Unnar Jón Ásgeirsson metin á 67. mínútu. Fjórum mínútum síðar skoraði Bjarni Þorvaldsson og kom KFR yfir.

Þar við sat og voru stigin þrjú eftir á Hellu. Með sigrinum komst KFR upp úr fallsæti og er liðið nú í 9. sæti. Álafoss er á botni deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.